Stutt ágrip af sögu Arion

"Arion verðbréfavarsla hf (e. Arion Custody Services) var stofnað í apríl árið 2002. Viðskiptaráðherra veitti Arion starfsleyfi 14. október það ár og fellur starfsemin undir lög um verðbréfafyrirtæki og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins. 

Starfsemin var fyrst til húsa að Sóltúni 26 í Reykjavík en er nú að Ármúla 13.

Rekstur Arion byggir á þeirri viðskiptahugmynd að stofna vörslubanka að erlendri fyrirmynd sem sé eftirsóknarvert fyrir fjármálafyrirtæki, lífeyris- og verðbréfasjóði að skipta við. Fyrir slíka aðila er það hagkvæm lausn að kaupa sér umsjón með eignum sínum og viðskiptavina sinna og spara sér í leiðinni kostnað við dýr tölvukerfi, viðhald þeirra og þróun, mannafla og sérþekkingu.

Frá byrjun starfaði 31 starfsmaður hjá fyrirtækinu á þremur meginsviðum, vörsluþjónustu, sérhæfðri þjónustu og viðskiptatengslum. Í febrúar 2003 tók Arion við bókhaldi og uppgjöri lífeyrissjóða sem Kaupþing banki annast rekstur á.  Um þessar mundir er starfsemi Arion á átta sviðum, vörslu-og uppgjörssvið og sjóðasvið eru tekjusvið og stoðsviðin eru umsjón vörslunets, upplýsinga-og tæknisvið, starfsmanna-og gæðasvið, fjárstýring, fjármálasvið og viðskiptaþróun. Í byrjun árs 2009 var fjöldi starfsmanna Arion um 70.

Umsvif Arion hafa vaxið mun hraðar en áætlað var í upphafi og í lok árs 2006 var verðbréfaeign í vörslu um 2.150 milljarðar íslenskra króna. Til samanburðar má nefna að verg landsframleiðsla á árinu 2006 var töluvert lægri en sem nemur þeirri upphæð og að heildareignir íslenska lífeyriskerfisins námu um 1.496 milljörðum króna í árslok 2006.

Arion er í eigu Kaupþings banka. Stjórn Arion skipa Finnur Sveinbjörnsson, stjórnarformaður, Einar Már Hjartarson, Heiðrún Jónsdóttir, Rós Guðmundsdóttir og Sigríður Olgeirsdóttir. Guðrún Blöndal er framkvæmdastjóri og er hún ásamt Ásgrími Skarphéðinssyni og Maríu Sólbergsdóttur frumkvöðull að viðskiptahugmyndinni að baki Arion.

Viðskiptavinum Arion, innlendum sem erlendum, hefur farið fjölgandi ár frá ári. Auk KB banka á Íslandi, Færeyjum, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Lúxemborg eru þeir meðal annarra: SPRON, H.F. Verðbréf hf.,  Sparisjóðurinn í Keflavík og Nord Vest verðbréf hf.  Einnig kaupa 13 erlendir bankar vörslu- og uppgjörsþjónustu fyrir íslensk bréf af Arion, svo sem  Citigroup, Svenska Handelsbanken og Føroya Sparikassi."

 

arion_logo

 

Heimild: Af vef Arion: Arion > Um okkur > Saga
vefslóð:
http://www.arion.is/?PageID=2048 (birtingarmynd 20. nóvember, 2009, kl. 19:30)

 

Stjórn

Finnur Sveinbjörnsson, stjórnarformaður.

Einar Már Hjartarson

Heiðrún Jónsdóttir

Rós Guðmundsdóttir

Sigríður Olgeirsdóttir

 

Heimild: Af vef Arion: Arion > Um okkur > Stjórn
vefslóð: http://www.arion.is/?PageID=3503
 (birtingarmynd 20. nóvember, 2009, kl. 19:30)


mbl.is Kaupþing verður Arion banki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góð uppfræðsla en bætir ekki bankann því miður. Það hefur sýnt sig að peningar á blaði er ekki nokkuð sem hönd er festandi.

Sigurður Haraldsson, 21.11.2009 kl. 01:03

2 identicon

Gott söguágrip hjá þér Árni.  Þetta er nákvæmlega það sem kom upp í huga minn þegar ég heyrði hvaða nafn hefði orðið fyrir valinu.  Ég hef sjálfur átt í samskiptum við Arion í tengslum við skil á lífeyrissjóðaskilagreinum og uppgjörum og þekki því lítillega til starfseminnar (og reyndar af góðu einu hvað að mér snýr, fín þjónusta og gott starfsfólk).

En hvers vegna í ósköpunum var ákveðið að velja þetta nafn á bankann.  Mér finnst þetta nafn vera eitt af því versta sem hægt var að velja og þetta segi ég með fullri virðingu fyrir því starfsfólki og þeirri starfsemi sem á sér stað hjá Arion verbréfavörslu. 

Ég held að bankinn hefði þurft á öllu öðru að halda en að vera að tengja sig við starfsemi sem var hluti af gamla Kaupþingi.   Stjórnarformaður Arion verðbréfavörslu og bankastjóri Arion banka (sem er einn og sami maðurinn) hefði átt að vita betur og hugsa sig tvisvar um áður en hann ásamt stjórn bankans ákváðu að þetta skyldi verða hið nýja nafn bankans. 

Að mínu mati setti bankinn mjög mikið niður við þessa nafnabreytingu og mín spá er að þetta nafn muni lifa styttra en sum af fyrri nöfnum bankans.  Væntanlegir nýir erlendir eignaraðilar munu varla vilja láta nafn bankans tengjast mis vel heppnuðum gjörðum hans á liðunum árum.

Til gamans má þess geta í lokin að þegar ég lét forritið púka yfirfara íslenskuna í þessu bloggi mínu, þá kannaðist forritið ekki við orðið "arion" enda ekki íslenskt.

Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 21.11.2009 kl. 09:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband